Psalms 44

1Til söngstjórans. Kóraítamaskíl. 2Guð, með eyrum vorum höfum vér heyrt, feður vorir hafa sagt oss frá dáð þeirri, er þú drýgðir á dögum þeirra, frá því, er þú gjörðir forðum daga. 3Þú stökktir burt þjóðum, en gróðursettir þá, þú lékst lýði harðlega, en útbreiddir þá. 4Eigi unnu þeir landið með sverðum sínum, og eigi hjálpaði armleggur þeirra þeim, heldur hægri hönd þín og armleggur þinn og ljós auglitis þíns, því að þú hafðir þóknun á þeim. 5Þú einn ert konungur minn, ó Guð, bjóð út hjálp Jakobsætt til handa. 6Fyrir þína hjálp rekum vér fjandmenn vora undir, og fyrir þitt nafn troðum vér mótstöðumenn vora fótum. 7Ég treysti eigi boga mínum, og sverð mitt veitir mér eigi sigur, 8heldur veitir þú oss sigur yfir fjandmönnum vorum og lætur hatursmenn vora verða til skammar. 9Af Guði hrósum vér oss ætíð og lofum nafn þitt að eilífu. [Sela] 10Og þó hefir þú útskúfað oss og látið oss verða til skammar og fer eigi út með hersveitum vorum. 11Þú lætur oss hörfa undan fjandmönnum, og hatursmenn vorir taka herfang. 12Þú selur oss fram sem fénað til slátrunar og tvístrar oss meðal þjóðanna. 13Þú selur lýð þinn fyrir gjafverð, tekur ekkert verð fyrir hann. 14Þú lætur oss verða til háðungar nágrönnum vorum, til spotts og athlægis þeim er búa umhverfis oss. 15Þú gjörir oss að orðskvið meðal lýðanna, lætur þjóðirnar hrista höfuðið yfir oss. 16Stöðuglega stendur smán mín mér fyrir sjónum, og skömm hylur auglit mitt, 17af því ég verð að heyra spott og lastmæli og horfa á óvininn og hinn hefnigjarna. 18Allt þetta hefir mætt oss, og þó höfum vér eigi gleymt þér og eigi rofið sáttmála þinn. 19Hjarta vort hefir eigi horfið frá þér né skref vor beygt út af vegi þínum, 20en samt hefir þú kramið oss sundur á stað sjakalanna og hulið oss niðdimmu. 21Ef vér hefðum gleymt nafni Guðs vors og fórnað höndum til útlendra guða, 22mundi Guð eigi verða þess áskynja, hann sem þekkir leyndarmál hjartans? 23En þín vegna erum vér stöðugt drepnir, erum metnir sem sláturfé. 24Vakna! Hví sefur þú, Drottinn? Vakna, útskúfa oss eigi um aldur! 25Hví hylur þú auglit þitt, gleymir eymd vorri og kúgun? 26Sál vor er beygð í duftið, líkami vor loðir við jörðina. [ (Psalms 44:27) Rís upp, veit oss lið og frelsa oss sakir miskunnar þinnar. ]
Copyright information for Icelandic